Lífið

Móðir Brittany deildi rúmi með ekkli dóttur sinnar

Samrýnd Móðir Brittany Murphy, Sharon, sagði við lögregluþjón að hún og ekkill dóttur hennar deildu rúmi eftir andlát Brittany. Slúðurblöð hið vestra hafa gert sér mat úr þessu og vilja meina að Sharon hafi átt í sambandi við Simon eftir dauða Brittany. nordicphotos/getty
Samrýnd Móðir Brittany Murphy, Sharon, sagði við lögregluþjón að hún og ekkill dóttur hennar deildu rúmi eftir andlát Brittany. Slúðurblöð hið vestra hafa gert sér mat úr þessu og vilja meina að Sharon hafi átt í sambandi við Simon eftir dauða Brittany. nordicphotos/getty

Móðir leikkonunnar Brittany Murphy sagði rannsóknarlögreglumönnum að hún deildi rúmi með ekkli dóttur sinnar. Sharon Murphy bjó heima hjá dóttur sinni og eiginmanni hennar og var það hún sem kom að dóttur sinni látinni.

Leikkonan Brittany Murphy fannst látin á heimili sínu þann 20. desember í fyrra. Við rannsókn málsins tjáði móðir leikkonunnar rannsóknarlögreglumanni að hún deildi rúmi með ekkli dóttur sinnar. Í rannsóknarskýrslunni stendur að Sharon Murphy hafi leitt lögreglumann í gegnum húsið og þegar þau gengu í gegnum hjónaherbergið á hún að hafa bent á rúmið og sagt lögreglumanninum að þetta væri „hennar hlið rúmsins".

Auk þess fundust lyf á náttborði sem stóð við hlið rúmsins og voru þau skráð á nöfnin Sharon Murphy og Sharon Monjack.

Simon Monjack, ekkill Brittany, sagðist í viðtölum syrgja eiginkonu sína mjög og sagði hann Hollywood hafa dregið hana til dauða. Monjack fannst látinn á heimili þeirra hjóna þann 23. maí síðastliðinn og er talið að dánarmein hans hafi verið hið sama og hjá Brittany.

Slúðurrit vestanhafs vilja meina að Monjack og Sharon Murphy hafi átt í einhvers konar ástarsambandi eftir andlát Brittany, en slíkt hefur þó aldrei fengist staðfest.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.