Pavel: Átti von á meiri slagsmálum Henry Birgir Gunnarsson í DHL-höllinni skrifar 25. mars 2010 21:19
Pavel Ermolinskij hefur á skömmum tíma smollið afar vel inn í lið Íslandsmeistara KR. Hann á hvern stórleikinn á fætur öðrum og hann stígur vart inn á völlinn án þess að ná þrefaldri tvennu. Hann gerði það enn og aftur gegn ÍR í kvöld. „Við náðum að stýra hraðanum, spila hratt og það hentar þeim ekki nærri eins vel og okkur. Þeir voru í vandræðum fyrir utan smá kafla í fjórða leikhluta," sagði Pavel. „Þó svo leikurinn hafi verið í járnum framan af fannst mér þeir vera svona hálfvonlausir. Það var ekki sá baráttuandi í þeim sem maður bjóst við, sérstaklega þar sem þetta var leikur í úrslitakeppninni. Þetta var mjög rólegt allt í kvöld og ég bjóst við miklu meiri slagsmálum og látum," sagði Pavel en verður hann með þrefalda tvennu það sem eftir er leiktíðar? „Vonandi. Ég er ekkert að reyna þetta endilega en þetta er minn leikur og það hvernig ég spila hentar KR-liðinu mjög vel enda margir frábærir sóknarmenn hérna og ég ekkert að einoka boltann allt of mikið. Ég ætla að halda áfram að spila svona og sjá hvað gerist," sagði Pavel en mörgum finnst að hann mætti skjóta meira. „Ef ég byrja að skjóta og hinir hætta þá byrja menn að rífast yfir því að ég sé að skjóta of mikið. Það þarf að finna hinn gullna meðalveg í þessu. Ég þurfti ekkert að skjóta mikið í dag en ef það kemur leikur þar sem ég þarf að skora þá bara geri ég það."
Dominos-deild karla Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Sjá meira