Fótbolti

Raul ekki að fara að hætta

Elvar Geir Magnússon skrifar
Raul er ekki að fara að hætta.
Raul er ekki að fara að hætta.

Raul, gulldrengurinn hjá Real Madrid, útilokar að leggja skó sína á hilluna að tímabilinu loknu.

Þessi 33 ára sóknarmaður hefur mátt verma tréverkið mikið þennan veturinn.

„Ég mun halda áfram að spila. Mín ósk er að vera annað tímabil hjá Real Madrid en ég mun í sumar skoða kosti og galla. Sama hvort ég verði hér áfram eða ekki þá er ljóst að ferill minn mun halda áfram," sagði Raul.

Raul er markahæsti leikmaður spænska landsliðsins frá upphafi og hefur þrívegis unnið Meistaradeildina á sínum ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×