Fótbolti

Ronaldo sá um Xerez

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Varnarmaður Xerez reynir að stöðva Ronaldo í leiknum í kvöld.
Varnarmaður Xerez reynir að stöðva Ronaldo í leiknum í kvöld.

Real Madrid minnkaði forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í tvö stig í kvöld.

Madrid vann þá góðan útisigur á Xerez, 0-3.

Öll mörk leiksins komu í síðari hálfleik. Alvaro Arbeloa kom Madrid á bragðið en Cristiano Ronaldo bætti svo við tveimur mörkum.

Barcelona getur aukið forskotið á ný í fimm stig á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×