Körfubolti

Fannar: Erfitt að lenda undir í Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fannar Freyr Helgason í leik með Stjörnunni fyrr í vetur.
Fannar Freyr Helgason í leik með Stjörnunni fyrr í vetur. Mynd/Vilhelm
Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar, var heldur niðurlútur eftir tap sinna manna í Keflavík í kvöld.

Keflavík vann stórsigur á Stjörnunni í toppslag kvöldsins í Iceland Express-deild karla, 118-83.

Mestu munaði um 22-0 sprett Keflavíkur í þriðja leikhluta þar sem allt virtist ganga upp hjá heimamönnum.

„Við lentum undir. Ef maður lendir undir í Keflavík þá fellur allt með þeim og afar erfitt fyrir okkur að komast aftur inn í leikinn," sagði Fannar.

„En þetta var þó bara fyrst og fremst lélegur leikur hjá okkur. Flóknara er það ekki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×