Fótbolti

Mourinho: Özil verður mjög mikilvægur

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
GettyImages
Mesut Özil gæti verið leikmaður Real Madrid næstu tíu árin. Þetta segir nýji stjórinn hans, Jose Mourinho.

Özil kostar Real 15 milljónir evra en hann er 21 árs gamall. Özil sló í gegn á HM í sumar en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Werder Bremen.

Raúl og Guti fóru frá Real í sumar og Kaká er meiddur.

"Hann er leikmaður sem getur spilað með Real Madrid í tíu ár. Hann verður mjög mikilvægur fyrir okkur. Samningurinn hans var að renna út svo að við fengum hann fyrir mun minna en eðlilegt hefði verið," sagði Mourinho.

"Kaká er meiddur og Özil og Sergio Canales munu spila mikið," sagði stjórinn.

Özil bætist í hóp þeirra Canales, Pedro Leon, Angel Di Maria, Sami Khedira og Ricardo Carvalho sem nýjir leikmenn hjá Real.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×