Fótbolti

Hundrað prósenta líkur á íslenskum bikarmeistara á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Það verður Íslendingaslagur í bikarúrslitaleik kvenna í Svíþjóð á morgun þegar Djurgården og Örebro mætast.

Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðars­dóttir spila með liði Örebro en félagið hefur aldrei orðið bikarmeistari. Edda og Ólína þekkja það hins vegar vel því þær hafa þrisvar orðið bikarmeistarar saman á Íslandi frá árinu 2005.

Guðbjörg Gunnarsdóttir stendur síðan í marki Djurgården en hún varð tvisvar bikarmeistari með Val á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×