Íslenski boltinn

Kristín Ýr með tvö í 5-0 sigri Vals á Blikum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristín Ýr Bjarnadóttir í baráttunni í kvöld.
Kristín Ýr Bjarnadóttir í baráttunni í kvöld. Mynd/Stefán
Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði tvö mörk fyrir Val þegar liðið vann 5-0 sigur á Breiðabliki á gervigrasvellinum að Hlíðarenda í kvöld en leikurinn var í A-deild Lengjubikarsins.

Kristín Ýr skoraði þriðja og fimmta mark Valsliðins og komu þau bæði í seinni hálfleik. Hallbera Guðný Gísladóttir og Dóra María Lárusdóttir komu Val í 2-0 á fyrstu ellefu mínútum leiksins eftir stoðsendingar frá hvorri annarri.

Rakel Logadóttir skoraði síðan fjórða markið í seinni hálfleiknum þegar hún fylgdi á eftir skoti frá Kristínu Ýr.

Valskonur eru með sjö stig eftir fyrstu þrjá leiki sína og eru á toppnum þremur stigum á undan Þór/KA sem á leik inni. Blikar hafa aðeins eitt stig út úr tveimur fyrstu leikjum sínum.

Upplýsingar um leikinn eru fengnar af vefsíðunni fotbolti.net.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×