Körfubolti

LeBron: Myndi gera hlutina öðruvísi ef ég fengi annað tækifæri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron James er enn að tala um vistaskiptin síðasta sumar er hann ákvað að yfirgefa Cleveland og fara til Miami. James tilkynnti um ákvörðun sína í sérstökum sjónvarpsþætti sem þótti afar umdeilt.

James segist ekki sjá eftir því að hafa farið til Miami en viðurkennir að hann myndi standa öðruvísi að hlutunum ef hann þyrfti að gera sama hlutinn aftur.

"Ég myndi örugglega ekki gera þetta alveg eins aftur ef ég gæti spólað til baka. Ég er samt ánægður með ákvörðun mína. Það mun alltaf vera einhver misskilningur en ég myndi klárlega breyta einhverju ef ég gæti gert þetta aftur," sagði James.

James gerði síðan grín og benti liðum á að hafa samband við sig fljótlega þar sem núverandi samningur rynni út árið 2015.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×