Fótbolti

Cesar klessukeyrði Lamborghini bifreið sína

Ómar Þorgeirsson skrifar
Julio Cesar.
Julio Cesar. Nordic photos/AFP

Sky Sports Italia greinir frá því að markvörðurinn Julio Cesar hjá Inter hafi klessukeyrt Lamborghini bifreið sína skammt frá San Siro-leikvanginum í gærkvöldi.

Cesar slapp þó ótrúlega vel en marðist aðeins á andliti og var sendur heim af æfingu liðsins í morgun og ekki er víst hvort að hann verði klár í slaginn gegn Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld.

Hinn gamalreyndi Francesco Toldo gæti því staðið í rammanum í leiknum mikilvæga gegn Chelsea.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×