Erlent

Skora á Gbagbo að víkja strax

Laurent gbagbo
Laurent gbagbo

Sendinefnd Vestur-Afríkuríkja hefur skorað á Laurent Gbagbo, forseta Fílabeinsstrandarinnar, að hlíta kosningaúrslitum og víkja úr sæti nú þegar.

Mikil óvissa hefur ríkt í landinu síðustu vikur eftir að Gbagbo neitaði að viðurkenna tap fyrir Alassane Ouattara.

Sá hefur stuðning allra nágrannaríkja og alþjóðasamféagsins, en 173 hafa látist í átökum öryggissveita Gbagbos og stuðningsmanna Ouattarra.

Afríkuríkin hóta hernaðar­íhlutun, en Nígería er sterkasta herveldi svæðisins. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×