Enski boltinn

Fabregas sagði Wenger að hann vildi fara

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cesc Fabregas í leik með Arsenal.
Cesc Fabregas í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Enskir og spænskir fjölmiðlar greindu frá því síðdegis að Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, hafi gengið á fund Arsene Wenger knattspyrnustjóra og tilkynnt honum að hann vildi fara frá félaginu í sumar.

Fabregas hefur lengi verið orðaður við Barcelona og sagður vilja fara þangað nú. Hann lék með unglingaliðum Barcelona áður en hann gekk til liðs við Arsenal sextán ára gamall.

Fabregas vill að framtíð hans verði útkljáð áður en HM í Suður-Afríku hefst í sumar.

Talið er að Barcelona muni leggja fram tilboð upp á 30 milljónir punda en óvíst er hvort að það dugi til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×