Fótbolti

Ricardo Carvalho tryggði Real Madrid sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ricardo Carvalho fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Ricardo Carvalho fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Mynd/AP
Ricardo Carvalho sá til þess að Real Madrid vann sinn fyrsta heimaleik undir stjórn landa hans Jose Mourinho. Portúgalski miðvörðurinn skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri á Osasuna í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sigurmark miðvarðarins kom á 48. mínútu leiksins og var svo sannarlega portúgalst í gegn því Ricardo Carvalho skoraði þá af stuttu færi eftir skyndisókn og stoðsendingu frá landa sínum Cristiano Ronaldo.

Þetta var fyrsti deildarsigur Real Madrid á tímabilinu en liðið hafði gert markalaust jafntefli í fyrstu umferðinni á móti Real Mallorca á útivelli. Sigurinn þýðir að Real-liðið er komið með eins stigs forskot á Barcelona sem tapaði fyrr í kvöld fyrir nýliðunum í Hércules.

Valencia er á toppnum með fullt hús stiga út úr tveimur fyrstu umferðunum eftir 1-0 sigur á Racing Santander. Hedwiges Maduro skoraði sigurmarkið á lokamínútu fyrri hálfleiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×