Fótbolti

Jesus afar vinsæll

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænski vængmaðurinn Jesus Navas hjá Sevilla er afar eftirsóttur þessa dagana og orðaður við fjölda stórliða.

Juventus, Chelsea, Real Madrid, Barcelona og nú síðast Arsenal eru öll orðuð við leikmanninn sem er 24 ára gamall.

Navas hefur verið tregur til þess að framlengja samning sinn við félagið en það ætlar samt ekki að fara á taugum og selja snemma.

Sevilla mun aðeins hlusta á risatilboð í leikmanninn og svo er líka hægt að kaupa upp samning leikmannsins fyrir ákveðið verð samkvæmt klausu í samningi hans.

Sú upphæð er reyndar svo há að aðeins Man. City mynda hafa efni á að losa hann strax.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×