Fótbolti

Zlatan segist ekki vera á förum frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Allar fréttir sem snúa að Svíanum Zlatan Ibrahimovic snúast um hvert hann sé að fara í sumar. Sjálfur er hann sáttur hjá Barcelona og er ekki að hugsa um að  yfirgefa félagið.

Hann þótti ekki standa undir væntingum hjá Barca síðasta vetur og Man. City og Chelsea eru á meðal þeirra félaga sem vilja kaupa hann frá Börsungum. AC Milan er einnig í þeim hópi.

"Ég var leikmaður Barcelona þegar ég fór í sumarfrí og ég verð enn leikmaður Barcelona er ég kem úr fríinu. Ég á fjögur ár eftir af samningi mínum við félagið," sagði Zlatan sem síðan gerði grín að þeim fjölmiðlum sem skrifa hvað mest um að hann sé svo gott sem farinn frá Barcelona.

"Ég vil þakka öllum þeim sem hafa notað nafnið mitt. Það er virkilega gaman að hafa verið hjá bæði Chelsea og Man. City án þess að hafa komið þangað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×