Körfubolti

Miller til Miami

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Miller í leik með Washington.
Miller í leik með Washington.

Pat Riley heldur áfram að púsla saman nýju meistaraliði hjá Miami Heat en hann hefur nú gengið frá fimm ára samningi við Mike Miller.

Hann er enn einn leikmaðurinn sem tekur á sig launalækkun til þess að taka þátt í Miami-ævintýrinu.

Miller mun spila við breyttar aðstæður í vetur því þegar úrslitakeppnin hefst næsta vor verða liðin níu ár síðan hann vann síðast leik í úrslitakeppninni. Það mun klárlega breytast núna.

Miller kemur frá Washington Wizards þar sem hann var með 13,7 stig og 5,1 frákast að meðaltali í leik. Hann var þess utan með 48 prósent nýtingu í þriggja stiga skotum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×