Erlent

Býður sig fram í Chicagoborg

Rahm Emanuel
Rahm Emanuel

Obama Bandaríkjaforseti skýrði frá því í gær að Rahm Emanuel, starfsmannastjóri í Hvíta húsinu og einn helsti ráðgjafi forsetans, ætli að hverfa úr starfi og bjóða sig fram til borgarstjóra í Chicago.

Jafnframt tilkynnti Obama að Peter Rouse taki við starfinu til bráðabirgða, en Rouse var starfsmannastjóri Obama þegar hann var öldungadeildarþingmaður.

Miklar vangaveltur hafa verið um að Emanuel myndi bjóða sig fram eftir að Richard Deley, borgarstjóri í Chicago, sagðist ekki sækjast eftir endurkjöri.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×