Fótbolti

Maradona segir Real ekki hafa boðið Higuain nýjan samning

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Higuain hefur fagnað nokkrum mörkum með Real Madrid.
Higuain hefur fagnað nokkrum mörkum með Real Madrid.
Hinn litríki þjálfari Argentínu, Diego Maradona, segir að framherji landsliðsins Gonzalo Higuain hafi ekki enn fengið boð um nýjan samning hjá félagsliði sínu Real Madrid. „Ég spurði Higuain um leið og ég hitti hann hvort að hann væri ekki búinn að fá nýjan samning og hann svaraði neitandi. Félagið hefur ekki einu sinni hringt í hann," sagði Maradona gáttaður. „Ég vona að hann haldi ró sinni og að umboðsmaður hans sem er einnig föður hans takist að landa góðum samningi. Ef það ekki tekst getur félagið selt hann fyrir 70 milljónir evra." Gonzalo Higuain hefur verið einn af aðal markaskorurum Real Madrid undanfarin tímabil en þrátt fyrir það hafa sögusagnir verið á sveimi um að hann yfirgefi félagið í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×