Erlent

Chavez er ekki lengur einráður

Úrslitum fagnað Stuðningsmenn forsetans ánægðir.fréttablaðið/AP
Úrslitum fagnað Stuðningsmenn forsetans ánægðir.fréttablaðið/AP

Þótt stuðningsmenn Hugo Chavez, forseta Venesúela, hafi náð ótvíræðum meirihluta í þingkosningum um helgina, þá eru þeir ekki lengur með yfir 75 prósent þingsæta, sem dugði þeim til að keyra mótstöðulaust í gegnum þingið svo til hvaða mál sem þeim sýndist.

Þegar nánast öll atkvæði höfðu verið talin var Sósíalistaflokkur Chavez kominn með að minnsta kosti 95 þingsæti, en bandalag stjórnarandstöðuflokkanna hafði fengið að minnsta kosti 61 sæti á þinginu, sem skipað er 165 þingmönnum. - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×