Þjálfari Cluj rekinn fyrir karate-spark - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2010 16:15
Sorin Cartu, þjálfari CFR Cluj, var í dag rekinn frá félaginu vegna hegðunnar sinnar á Meistaradeildarleik Cluj og Basel í vikunni. Cartu er þekktur fyrir skapbresti sína og reiðiköst en nú gekk þessi 55 ára gamli Rúmeni of langt. Umræddur leikur fór fram á St. Jakob-Park, heimavelli Basel og CFR Cluj tapaði honum 1-0 á marki úr víti í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Tapið þýðir að Cluj endar í neðsta sæti riðilsins og þátttöku liðsins í Evrópukeppnum í vetur lýkur því eftir lokaleik riðilsins á móti Roma. Sorin Cartu var ekki sáttur með vítaspyrnudóminn og tók sig til og braut plexí-glerið í varamannaskýlinu með karate-sparki að hætti Zlatans Ibrahimovic. Það má sjá þetta ofsakast þjálfarans í myndbandi sem fylgir fréttinni en það lítur út fyrir að aðstoðarmennirnir séu mjög vanir látunum í þjálfaranum því þeir sýna ekki mikil viðbrögð á meðan þjálfarinn stórskemmir varamannaskýlið. Sorin Cartu hefur áður látið reiði sína bitna á plexí-gleri í varamannaskýli því fyrir tveimur árum reyndi hann að brjóta glerið með höfðinu en það var kannski eins gott að það tókst ekki. Það má sjá það reiðikast Cartu með því að smella hér.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Fleiri fréttir Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Sjá meira