Fótbolti

Messi: Verð aldrei eins góður og Maradona var

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi.

Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims í dag, segir að hann verði aldrei eins góður og Diego Maradona var. Margir vilja bera þá tvo saman.

„Ég verð aldrei eins góður og Maradona. Ég vil ekki einu sinni hugleiða það. Hann er besti knattspyrnumaður allra tíma," sagði Messi. „Ég er ekki eins og Maradona. Ég á mína eigin sögu og mun afreka ýmsa hluti á mínum forsendum."

Maradona er í dag þjálfari Messi hjá argentínska landsliðinu. Messi hefur ekki náð sama flugi með Argentínu og hann hefur gert með félagsliði sínu, Barcelona.

„Það er tvennt ólíkt að spila fyrir Barcelona og landsliðið. Ég er ekki að segja að Argentína sé ekki með góða leikmenn, þeir hafa marga menn á heimsmælikvarða. Við höfum bara ekki sama tíma til að vinna saman. Allt gerist svo snöggt, tvær æfingar og svo bara leikur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×