Fótbolti

Casillas biður um þolinmæði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Iker Casillas, markvörður Real Madrid, hefur beðið stuðningsmenn félagsins um að sýna liðinu þolinmæði enda er hann sannfærður um að Jose Mourinho sé að byggja upp sigurlið.

"Stuðningsmenn félagsins eru dyggir félaginu. Ég verð samt að biðja þá um þolinmæði. Þetta er nýtt og ungt lið sem við höfum í höndunum sem mun verða sterkara. Það sem tekur önnur félög tvö ár erum við að reyna að gera á tveim mánuðum," sagði Casillas og bætir við að það sé ekki í forgangi að keppa við Barcelona.

"Ég tel mig tala fyrir hönd alls liðsins er ég tel það ekki vera nauðsynlegt að vera alltaf fyrir ofan Barcelona. Það er næsti leikur sem skiptir öllu máli. Það mun taka liðið smá tíma að þróast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×