Fótbolti

Fullyrt að Villa sé á leið til Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa fagnar marki í leik með spænska landsliðinu.
David Villa fagnar marki í leik með spænska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Spænska dagblaðið Marca fullyrðir í dag að Valencia og Barcelona hafi komist að samkomulagi um kaupverð á framherjanum David Villa.

Valencia hefur átt í nokkrum fjárhagsvandræðum undanfarin misseri og hefur Villa af þeim sökum verið orðaður við mörg af stærstu liðum Evrópu undanfarin ár.

Talið er að hann hafi verið nálægt því að ganga í raðir Barcelona í fyrra en ekkert varð úr því þá. Nú mun Pep Guardiola, stjóri Börsunga, hins vegar náð að sannfæra Villa um að koma til félagsins.

Joan Laporta, forseti Barcelona, var einnig sagður áhugasamur um að ganga frá samningum við Villa áður en forsetatíð hans lýkur þann 13. júní næstkomandi.

Marca fullyrðir enn fremur að kaupverðið sé um 40 milljónir evra og að tveir leikmenn gætu farið á móti í skiptum - þeir Aleksander Hleb sem nú er í láni hjá Stuttgart og Bojan Krkic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×