Lífið

Viðurkennir framhjáhald

David Boreanaz, sem fer með hlutverk í Bones, hélt framhjá eiginkonu sinni til níu ára.
Nordicphotos/getty
David Boreanaz, sem fer með hlutverk í Bones, hélt framhjá eiginkonu sinni til níu ára. Nordicphotos/getty

Leikarinn David Boreanaz, sem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Bones, hefur komið fram og viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til níu ára.

„Hjónaband okkar hefur litast af svikum mínum. Ég vil koma hreint fram. Ég var óábyrgur," sagði leikarinn, en orðrómur um meint samband hans og Rachel Utichel, fyrstu hjákonu Tigers Woods, kom fram í haust í fyrra.

„Ég átti vingott við konu sem ég vil ekki nefna á nafn. Hún bað um pening og mér leið sem verið væri að kúga mig og fannst því best að koma hreint út." Ýmsir vilja meina að ástkonan sem um ræðir sé einmitt Utichel.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.