Körfubolti

Gilbert sér ekki eftir neinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron er ekki vinsæll í Cleveland.
LeBron er ekki vinsæll í Cleveland.

Dan Gilbert, eigandi NBA-liðsins Cleveland Cavaliers, sér alls ekkert eftir því að hafa hraunað yfir LeBron James er hann ákvað að yfirgefa Cleveland fyrir Miami.

Gilbert lét James heyra það á eftirminnilegan hátt í bréfi og kallaði hann meðal annars gungu. Honum dettur ekki til hugar að taka eitt einasta orð til baka.

"Ég sé alls ekki eftir orðum mínum. Bréfið mitt var til stuðningsmanna félagsins en ekki til leikmannsins sem fór. Ég vildi að stuðningsmenn félagsins skildu hvernig okkur stjórnarmönnunum leið," sagði Gilbert í útvarpsviðtali.

Gilbert var sektaður um 100 þúsund dollara fyrir bréfið en hann ásakaði James einnig um að hafa gefist upp í úrslitakeppninni gegn Boston á síðustu leiktíð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×