Enski boltinn

Vermaelen: Cesc Fabregas er með Barcelona í sínu DNA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas. Mynd/AFP
Thomas Vermaelen, varnarmaður Arsenal og liðsfélagi Cesc Fabregas, segir að Fabregas sé með Barcelona í sínu DNA. Hinn 23 ára fyrirliði Arsenal hefur verið orðaður við Barcelona liðið í allt sumar en Arsene Wenger var ekki tilbúinn að láta hann fara.

„Cesc er með Barcelona í sínu hjarta og sínu DNA. Það er því ómögulegt fyrir hann að gleyma þeim. Hann var staðráðinn í að fara til Barcelona síðasta sumar og nánast viðurkenndi það í búningsklefanum. Það er samt liðin tíð og nú er hann hundrað prósent tilbúinn í það að eiga frábært tímabil með Arsenal," sagði Thomas Vermaelen sem er fyrirliði Belga.

Cesc Fabregas lék með unglingaliði Barcelona áður en hann fór aðeins sextán ára til Arsenal þar sem hann hefur leikið frá árinu 2003.

Fréttir sem tengja Cesc Fabregas og Barcelona eru daglegt brauð í spænskum og enskum miðlum og það virðist ekki einu sinni hafa dugað til að félagsskiptaglugginn lokaði. Leikmenn beggja lið eru nefnilega ítrekað spurðir út í Fabregas og Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×