Innlent

Besti flokkurinn hefur alla burði til að ná langt

Besti flokkurinn, flokkur Jóns Gnarr, virðist sópa til sín atkvæðum óánægðra kjósenda í borginni. Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands telur að flokkurinn hafa alla burði til að ná langt í komandi kosningum.

Besti flokkurinn fær tvo borgarfulltrúa samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birt var í morgun. Flokkurinn mælist nú með nærri þrettán prósenta fylgi.

Sjálfstæðiflokkur, Samfylking og Vinstri grænir halda sínum borgarfulltrúum en Framsókn og Frjálslyndi flokkurinn koma ekki manni að. Könnunin náði til 800 borgarbúa en um 480 tóku afstöðu eða um 60 prósent.

Magnús Árni Magnússon, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar HÍ, segir tíðindi felast í því að núverandi meirihluti sé fallinn. Einnig að þrátt fyrir gott gengi í skoðanakönnunum á landsvísu nái Sjálfstæðisflokkurinn ekki að endurheimta stöðu sína sem meirihlutaflokkur í Reykjavík.

Magnús segir að ríkisstjórnarflokkarnir geti vel við unað og þá komi árangur Besta flokksins á óvart. Hann telur að flokkurinn geti náð góðum árangri í komandi kosningum enda sé listi flokksins skipaður þjóðkunnum einstaklingum.

„Það getur vel verið að fólk treysti þessum einstaklingum þó svo þeir séu í einhverskonar hlutverki í þessari kosningabaráttu,“ segir Magnús.

Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, segir að ekki sé um grínframboð að ræða en flokkurinn hefur það meðal annars á stefnuskrá að fá ísbjörn í Húsdýragarðinn og setja upp tollahlið við Seltjarnarnes.

Eru þetta mál sem að samfélagið þarf á að halda einmitt núna þegar við erum að ganga í gegnum eina mestu efnahagskreppu seinni tíma? „Já, tvímælalaust. Við getum ekki bara endalaust horft á fréttir og fylgst með þessum leiðindum. Við verðum líka að geta farið í Húsdýragarðinn, slakað á og horft á ísbjörn,“ segir Jón.

Tengdar fréttir

Besti flokkurinn nær tveimur mönnum inn

Besti flokkurinn fengi 12,7 prósenta fylgi og tvo borgarfulltrúa yrði kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur í dag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×