Fótbolti

Máttlausir Madridingar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svekktur Ronaldo í leiknum í kvöld.
Svekktur Ronaldo í leiknum í kvöld.

Leikmenn Real Madrid voru búnir með tívolibomburnar gegn Osasuna í kvöld og urðu að sætta sig við markalaust jafntefli.

Madridingum tókst því ekki að ná Barcelona að stigum en Börsungar misstigu sig einnig í fyrsta leik eftir áramót og gerðu jafntefli.

Barcelona hefur því tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar en það verður væntanlega mikill slagur milli þessara liða allt til enda tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×