Fótbolti

Mourinho orðaður við Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Portúgalinn Jose Mourinho gæti staðið frammi fyrir erfiðum ákvörðunum næsta sumar. Heimildir herma nefnilega að Real Madrid vilji fá hann sem þjálfara næsta sumar.

Tuttosport segir að forseti Real Madrid, Florentino Perez, sé ekki fullkomlega ánægður með núverandi þjálfara, Manuel Pellegrini.

Leikmenn Real eiga enn möguleika á að ná árangri í vetur en hverjum leikmanni hefur verið lofað einni milljón evra í bónus takist liðinu að vinna spænsku deildina sem og Meistaradeildina.

Fari svo að Mourinho taki við Madrid herma heimildir að Laurent Blanc muni taka við Inter af Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×