Lífið

Steindi skorar á forsetann að leika í þættinum sínum

hasar Tökur á nýrri þáttaröð Steindans okkar eru hafnar. Á myndinni er Steindi nær óþekkjanlegur í gervi ásamt Bent fyrir aftan myndavélina, Didda Fel á hljóðinu og leikaranum Davíð Guðbrandssyni. Fyrir aftan eru Þórunn Antonía, sem leikur í þáttunum, Magnús Leifsson handritshöfundur og framleiðandinn Hrefna Björk Sverrisdóttir.fréttablaðið/Vilhelm
hasar Tökur á nýrri þáttaröð Steindans okkar eru hafnar. Á myndinni er Steindi nær óþekkjanlegur í gervi ásamt Bent fyrir aftan myndavélina, Didda Fel á hljóðinu og leikaranum Davíð Guðbrandssyni. Fyrir aftan eru Þórunn Antonía, sem leikur í þáttunum, Magnús Leifsson handritshöfundur og framleiðandinn Hrefna Björk Sverrisdóttir.fréttablaðið/Vilhelm

Steindi Jr. sló í gegn með þætti sína Steindinn okkar fyrr á árinu. Hann vinnur nú að nýrri þáttaröð sem verður sýnd snemma á næsta ári og dreymir um að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að leika í atriði.

„Ég er handviss um að forsetinn muni slá til og taka þátt í þessu með okkur," segir grínistinn Steindi Jr.

Steindi og félagar hófu tökur á annarri þáttaröð Steindans okkar í vikunni. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er ofarlega á lista Steinda yfir þá sem hann vill fá í aukahlutverk í nýju þáttaröðinni.

„Við reyndum að fá Ólaf Ragnar í fyrstu seríuna. Ég get lofað þér að hann kemur eftir að hann les þessa frétt. Hann má búast við símtali," segir Steindi kokhraustur. „Annars förum við heim til hans með kameruna - við vitum hvar hann á heima. Við erum með góðar hugmyndir um atriði með forsetanum."

Steindi segir nýju þáttaröðina leggjast vel í sig og bætir við að landslið grínista og leikara verði sér innan handar. Þekkt andlit vöktu mikla athygli í síðustu þáttaröð Steinda, en hann harðneitar því að troða frægu fólki í þættina að ástæðulausu.

„Mér finnst ógeðslega skemmtilegt þegar fólk kemur og leikur sjálft sig," segir hann. „En við veljum alltaf þá sem okkur finnst passa best í hlutverkin."

Og það eru fleiri á óskalista Steinda. „Okkur langar að fá Valda úr Geisladiskabúð Valda," segir hann.

„Við spurðum hann einu sinni hvort hann gæti komið, en þá var hann einn í búðinni og gat ekki lokað. Ég sagði honum að við myndum hringja í hann aftur. Valdi er búinn að vera maður fólksins mjög lengi og er körfuboltagoðsögn. Hann á svo sannarlega heima í sjónvarpi."

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.