Lífið

Biggi Maus og Tómas R. saman í Fuglabúri í kvöld

Biggi í Maus og Tómas R. rugla saman reitum sínum á Café Rósenberg í kvöld.
Biggi í Maus og Tómas R. rugla saman reitum sínum á Café Rósenberg í kvöld.

Tveir afar ólíkir listamenn munu rugla saman reitum sínum á Café Rósenberg í kvöld, eða popparinn Biggi Maus og djassarinn Tómas R. Einarsson. Þeir hafa síðustu vikuna unnið að því að endurútsetja lög sín með þeim Ómari Guðjónssyni, gítarleikara, og Helga Svavari, trommuleikara.

Hugmyndin er að skeyta saman ólíkum tónlistarheimum og reyna að finna sameiginlegan flöt. Niðurstaðan virðist ætla að verða nokkuð afslöppuð en tilraunakennd, fljótandi tónlistarupplifun þar sem þeir félagar vinna sig í gegnum höfundarverk hvors annars.

Leikin verða lög eftir Maus, Krónu, sólóverki Bigga til helminga við lög Tómasar R. - og ávallt í nýjum búningum. Þess má til gamans geta að Tómas R. er fyrrum kennari Bigga sem lærði hjá honum tónfræði í FÍH sem táningur. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Fuglabúrið. Miðaverð er 1.000 krónur.

Tónleikaröðin Fuglabúrið er skipulöggð í samstarfi FTT og Reykjavík Grapevine. Tvennir listamenn koma fram á hverjum tónleikum, helst úr sitt hvorri áttinni í aldri og stíl, og spila hvor sína tónleikana, en ljúka síðan kvöldinu með samspili hverskonar.

Fyrstu tónleikarnir voru í maí 2009 með mæðgunum Bryndísi Jakobsdóttur og Ragnhildi Gísladóttur. Svo var röðin komin að Megas og Ólöfu Arnalds en í þriðja Búrinu sem haldið var í lok sumars 2009 voru það Bubbi Morthens og Hafdís Huld sem léku listir sínar. Jólafuglabúrið var í desember þar sem Gunnar Þórðarson og Svavar Knútur héldu hátíðlega tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Andrea Gylfadóttir og Villi Naglbítur leiddu svo saman hesta sína í febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.