Fótbolti

Pedro Rodriguez tryggði Barcelona 1-0 sigur á Sporting Gijón

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pedro Rodriguez fagnar marki sínu ásamt Lionel Messi.
Pedro Rodriguez fagnar marki sínu ásamt Lionel Messi. Mynd/AFP
Pedro Rodriguez skoraði eina mark Evrópumeistara Barcelona í 1-0 útisigri á Sporting Gijón í spænsku deildinni í kvöld. Pedro Rodriguez skoraði sigurmarkið á 30. mínútu leiksins.

Barcelona náði með sigrinum átta stiga forskoti á Real Madrid sem getur minnkað forskotið aftur í fimm stig með sigri á Deportivo La Coruna í leik sem stendur nú yfir.

Lionel Messi var fljótur að hugsa í sigurmarkinu þegar hann tók aukaspyrnu fljótt og gaf boltann á Andres Iniesta sem sendi boltann inn fyrir vörnina.

Pedro slapp í gegn og skoraði af mikill yfirvegun fram hjá Juan Pablo markverði Sporting Gijón. Markið kom eftir hálftíma leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×