Körfubolti

Jón Halldór: Það er eintóm gleði hjá okkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel

Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, var að sjálfsögðu ánægður eftir öruggan og sannfærandi sigur á Grindavík í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Keflavík náði mest 26 stiga forskoti og sjöundi sigurinn í sjö leikjum á árinu 2010 var aldrei í hættu.

„Fyrri hálfleikurinn var svakalegur sóknarlega en jafnlélegur varnarlega. Við vorum að fá alltof mikið af stigum á okkur í fyrri hálfeik en sóknarlega vorum við frábærar," sagði Jón Halldór.

„Byrjunin á árinu er búin að vera framar okkar björtustu vonum. Við erum búin að vera vinna gríðarlega vinnu í allan vetur og hún er vonandi að skila sér núna. Ég ótrúlega ánægður með stelpurnar. Það var mikið af fólki að fá ný hlutverk og þetta tekur allt tíma. Vonandi er þetta að smella saman," segir Jón Halldór sem ætlar sér að ná öðru sætinu.

„KR er klárlega búið að vera með langbesta liðið í vetur og þær eru nokkurn vegin búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Við erum ekkert að elta það," segir Jón Halldór.

„Það er eintóm gleði hjá okkur og við erum búnar að vera heppnar því það er lítið um meiðsli hjá okkur. Marín er að koma til baka eftir að hafa puttabrotið sig um daginn og það er það eina sem hefur verið af meiðslum eftir áramót. Það spilar líka inn í að við erum allar heilar," segir Jón.

Hann var þó ekki alveg sáttur þrátt fyrir sigur.

„Við vorum lélegar í seinni hálfleik og Grindavíkurstelpurnar komu grimmar inn í seinni hálfleik. Við vorum þar af leiðandi að ströggla og þá sérstaklega sóknarlega. Við töpuðum seinni hálfleiknum með fimm og því er ég ekkert rosalega hrifinn af. Við þurfum að laga það en við unnum leikinn og ég er bara glaður. Maður er samt alltaf að leita að leiðum til þess að bæta liðið sitt," segir Jón Halldór að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×