Flugvöllum líklega lokað á morgun 22. apríl 2010 18:05 Mynd/Teitur Jónasson
Allar líkur eru á að Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur lokist í fyrramálið vegna öskustróks frá Eyfjallajökli en spáð er suðaustan átt á morgun. Icelandair hefur ákveðið flýta flugi félagsins til Parísar, London, Kaupmannahafnar og Manchester/Glasgow, Osló/Stokkhólms í fyrramálið, og verður brottför klukkan fimm vegna yfirvofandi lokunar flugvallarins. Öðrum flugum á morgun hefur verið aflýst og ný flug sett upp í staðinn. Óvissa er um það hvernig flugi Icelandair til og frá landinu verður háttað á næstunni og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um flugáætlun, komu og brottfarartíma fluganna, m.a. á www.icelandair.is. Flugi félagsins í fyrramálið frá Boston, New York og Seattle í Bandaríkjunum verður stefnt til Glasgow í Skotlandi og þar verður sett um tengistöð. Síðdegisflugi frá Evrópu til Íslands verður sömuleiðis beint til Glasgow. Til þess að flytja farþega milli áfangastaða félagsins og Íslands verða sett upp flug milli Glasgow og Akureyrar. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair að fyrirtækið hefur undanfarna daga unnið að viðbúnaðaráætlun ef til þess kæmi að Keflavíkurflugvelli yrði lokað vegna öskufallsins frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. Í undirbúningunum hefur verið lögð áhersla á að halda starfsemi félagsins gangandi, halda opnum flugsamgöngum milli Íslands og umheimsins og veita viðskiptavinum þjónustu. Áhöfnum og öðrum starfsmönnum hefur verið flogið til Bretlands og eru tilbúnir til starfa þegar þörf krefur.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt Innlent Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Tveir reyndust í skotti bíls Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu „Öllum ljóst að Ölfusárbrú verði að rísa“ Loksins mega hommar gefa blóð Blóðgjöf samkynhneigðra karla leyfð og ósáttar húsmæður Fimm bíla árekstur á Vesturlandsvegi Nefndin deili ekki við þá sem gagnrýna hana á „mis málefnalegan hátt“ Sjá meira