Fótbolti

Valencia ætlar að selja Villa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Chelsea og Man. City eru bæði í startholunum eftir að það kvisaðist út að Valencia ætli sér að selja framherjann David Villa í sumar til þess að rétta fjárhag félagsins af.

Valencia er í verulegum fjárhagskröggum og getur ekki leyft sér að halda feitum bita eins og Villa lengur ef félagið vill lifa af.

Þess vegna kemur vel til greina að félagið losi sig einnig við David Silva.

Valencia ætlar sér að fá að minnsta kosti 50 milljónir punda fyrir báða leikmenn en gæti vel fengið meira ef það byrjar verðstríð um Villa sem má fastlega búast við. Þá færi leikmaðurinn líklega á um 40 milljónir punda.

Barcelona og Real Madrid hafa bæði áhuga á Villa en hann er talinn vilja reyna fyrir sér í enska boltanum.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×