Lífið

Með of litlar hendur

Bomban Megan Fox lenti í miklum erfiðleikum í nýjustu mynd sinni Jonah Hex. Þrátt fyrir að hafa haft ánægju af að leika í spennuatriðunum í myndinni átti hún í mestu vandræðum með gripið á skotvopnunum.

„Það var eitt atriði sem áhættuhópurinn var búinn að æfa fyrir í nokkrar vikur. Síðan mætti ég á svæðið og gat ekki framkvæmt það sem þeir vildu því að ég er með pínulitlar barnahendur," segir Megan.

Leikkonan segir að þetta hafi þó ekki verið það eina sem hafi verið að trufla hana í atriðunum. Byssurnar voru svo þungar og stórar að þetta tók einnig mjög á Megan.

Hér er hægt að sjá sýnishorn úr myndinni. Athugið að það er ekki fyrir viðkvæma!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.