Innlent

Vill strangt eftirlit með forvirkum rannsóknum

Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir

„Ég hafna ekki hugmyndum um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, en geld engu að síður varhug við þeim. Ef af verður er mikilvægt að strangt og gott eftirlit verði með þeim sem hafa slíkar heimildir."

Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, um hugmyndir Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, um forvirkar rannsóknarheimildir til handa lögreglu.

Þórunn undirstrikar að mjög varlega verði að stíga til jarðar þegar um slíkar ráðstafanir sé að ræða.

„Við jafnaðarmenn höfum ætíð viljað standa vörð um mannréttindi fólks þegar heimildir lögreglu eru annars vegar," segir hún og hrósar jafnframt dómsmála- og mannréttindaráðherra fyrir að setja jafn mikilvæg mál og þetta í almenna umræðu áður en réttarfarsnefnd hafi fengið málið til skoðunar.

„Ég geri mér hins vegar vel grein fyrir því að í baráttu við skipulagða glæpastarfsemi telur lögregla sig vanta betri tæki og víðtækari heimildir til að vinna gegn henni. Það eru mikilvæg rök af hálfu lögreglu. En þetta verður örugglega skoðað mjög vandlega af hálfu ráðuneytis og Alþingis."

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu sendi hins vegar frá sér hörð mótmæli í gær vegna hugmynda ráðherrans um auknar rannsóknarheimildir lögreglu.

„Með því að heimila njósnir um einstaklinga án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um saknæmt athæfi er ríkisvaldið komið út á næfurþunnan ís," segir meðal annars í yfirlýsingunni.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×