Matur

Gamaldags rækjurómantík

Nemendur Margrétar hafa sett fiskihlaup aftur á dagskrá.
Nemendur Margrétar hafa sett fiskihlaup aftur á dagskrá.

„Gullaldarár fiskihlaupa var á áttunda ára­tugnum en undanfarið hefur það sótt mjög í sig veðrið aftur, ekki síst hjá unga fólkinu sem þykir fáir for­réttir flottari en fagurskreytt fiskihlaup, auk þess að vera verulega bragðgóður, ódýr og hitaeiningasnauður," segir Margrét Sigfús­dóttir, skólastýra Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, þar sem matreiðsla fiskihlaups er nú aftur kennd að beiðni ungra húsmóður­efna.

Margrét útskýrir hvernig hlaupsgerðin hefur orðið auðveldari í tímans rás. „Á árum áður þurfti að sjóða lúðubita og bein, skíra síðan soðið með eggjahvítu og eggjaskurn til að fá það tært og sigta í gegnum klút, en nú er auðveldast að nota Toro-teninga með hleypiefni í."

Margrét segir Íslendinga hafa byrjað að snæða forrétt á undan jólamatnum eftir miðja síðustu öld, súpur, rækjukokkteila og fiskihlaup, en nú sé humar það heitasta á jólaborðið, sem og grafin villibráð.

„Grafin gæs, hreindýravöðvi og hreindýralifrarkæfa njóta nú mikilla vinsælda, enda sælkerafæði. Sjálf mundi ég helst kjósa að hafa það á borðum heima, en þar er ekki stemningin fyrir forréttum," segir Margrét og skellihlær í eftirsóttum skóla sínum.

„Hér gæti verið tvísetinn skóli ár eftir ár og sárt að vísa nemendum frá. Námsefnið er enda eftirsóknarvert; gömul og góð gildi sem ekki mega týnast en voru á leið í glatkistuna því nú eru flestar konur á vinnumarkaði og því ekki lengur heima til að kenna dætrum sínum húsverk, matseld og handavinnu."- þlg



Rækjuhlaup frú Margrétar

2 pakkar Toro lys buljong-gele aspik-hlaup

300 g rækjur

rauð og græn paprika

harðsoðin egg

grænn aspas

steinselja

Leysið upp hlaup í sjóðandi vatni og hellið smávegis í botn formsins. Látið stífna. Raðið fallega í botninn skorinni papriku, aspas, eggjum, steinselju og rækjum, og raðið síðan upp við barmana svo hráefnið geti stuðst við það matarskraut sem fyrst var raðað í botninn.

Fyllið upp í formið með afgöngum hráefnanna og fyllið svo upp með soðinu. Látið mótið standa kyrrt meðan hlaupið kólnar og stífnar, og setjið svo í kæli. Berið fram með ristuðu brauði, miklu af skornum harðsoðnum eggjum, tómötum og gúrkum og kokkteilsósu eða tartarsósu eftir smekk.

Best er að laga hlaupið deginum áður en það geymist vel í kæli í fimm daga. Má ekki frysta. Eins má nota 1 dl af hvítvíni út í hlaupið og þá taka út 1 dl af soðnu vatni í staðinn.

Margrét segir mikilvægt að raða fisk og grænmeti fallega í mótið svo útkoman sé flott þegar hvolft er úr því, enda um hreint borðskraut að ræða þótt það sé líka gómsætt til átu. Best sé að nota sílikon- eða plastmót, en einnig venjulegt jólakökumót sem dýft er snöggt í vatn svo hlaupið losni úr.

Margrét ber fram kokkteilsósu með rækju­hlaupinu, en notar í það sýrðan rjóma í stað majóness, enda frískari og hollari kostur, og alveg jafn bragðgóður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.