Körfubolti

Guðjón: Dapur varnarleikur framan af

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnar  Einarsson var stigahæstur hjá Keflavík í kvöld.
Gunnar Einarsson var stigahæstur hjá Keflavík í kvöld.

„Fyrst og fremst er ég ósáttur við mitt lið. Við vorum lengi af stað," sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, eftir tapleik hans manna í Grindavík í kvöld.

„Við vorum lengi í gírinn, varnarlega vorum við daprir framan af og sóknarleikurinn virkaði stífur. Við vorum ekki að ná að komast í okkar leik."

Í lokin hefði sigurinn þó getað fallið hvoru megin sem var. „Við áttum alltaf möguleika en vorum ekki nægilega klárir. Í lokin tókum við nokkur skot sem voru illa ígrunduð. Þetta eru hlutir sem við þurfum að vinna meira í," sagði Guðjón.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×