Fótbolti

Guardiola: Að vinna deildina er í forgangi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, segir það skipta mestu máli í vetur að vinna spænsku deildina. Meistaradeildin komi þar á eftir.

„Meistaradeildin er ekki í forgangi í ár heldur spænska deildin. Ef við stöndum okkur ekki í deildinni erum við líklega ekki að fara að gera merkilega hluti í Evrópu heldur," sagði þjálfarinn.

„Ég hef krafist alls þess besta af leikmönnum mínum í deildinni í vetur og því verðum við að vinna hana. Ef við náum ekki að halda leik okkar í toppi út leiktíðina þá verða hlutirnir flóknir."

Barcelona er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir Arsenal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×