Fótbolti

Guardiola búinn að framlengja

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Framhaldssögunni um framtíð Pep Guardiola, þjálfara Barcelona, er lokið því hann er búinn að skrifa undir nýjan samning við Evrópumeistarana.

Það er reyndar enginn langtímasamningur því nýi samningurinn gildir út leiktíðina 2011. Það þykir óvenju stutt.

Samningur Guardiola átti að renna út í sumar og hann hafði dregið að skrifa undir nýjan samning. Sérstaklega þar sem ekki er ljóst hver verður forseti Barca næsta vetur.

Guardiola tók við Barcelona af Frank Rijkaard árið 2008 og vann allt sem hægt er að vinna með liðinu á sinni fyrstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×