Fótbolti

Pellegrini vill enn meira frá sínum mönnum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Manuel Pellegrini.
Manuel Pellegrini.

Manuel Pellegrini, þjálfari Real Madrid, segist vilja sá enn meira frá sínum mönnum. Hann er ekki fyllilega sáttur þrátt fyrir gott gengi liðsins að undanförnu, liðið slátraði Tenerife 5-1 í gær.

Real hefur unnið sex deildarleiki í röð, skorað 22 mörk í þeim leikjum og aðeins fengið á sig fjögur. Liðið er tveimur stigum á eftir Barcelona.

„Gott má alltaf bæta, við erum ekki fullkomið lið. Við þurfum meðal annars að halda boltanum betur í vörninni," sagði Pellegrini sem var þó mjög sáttur við sigurinn gegn Tenerife.

„Tenerife er með mjög sterkan heimavöll. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur en náðum að spila frábæran sóknarleik og unnum góðan sigur."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×