Fótbolti

AS segir Mourinho vilja Schweinsteiger

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Spænska fréttastofan AS greinir frá því í dag að Bastian Schweinsteiger sé að færast efst á óskalista Jose Mourinho hjá Real Madrid. Efstir voru Daniele de Rossi og Steven Gerrard.

De Rossi fær ekki að fara frá Roma og Gerrard er of dýr fyrir Real Madrid. Verðmiðinn á Schweinsteiger gæti þó verið of hár líka, hann er metinn á um 55 milljónir evra af Bayern Munchen.

Hann er þó yngri en Gerrard en á eftir Schweinsteiger á óskalista Mourinho er Javi Martinez, landsliðsmaður Spánverja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×