Innlent

Sjálfstæðisflokkur á meiri eignir en áður

Framlög lögaðila til Sjálfstæðisflokksins árið 2008 námu 8,6 milljónum króna, samkvæmt ársreikningi flokksins. Þessi framlög námu tæpum 57 milljónum árið 2007. Á sama tíma fóru eignir flokksins úr því að vera tæpar 462 milljónir og í rúmar 705 milljónir króna. Eigið fé flokksins fer úr 386,3 milljónum og í 662,7 milljónir, sem er aukning um 71 prósent.

Þetta kemur fram í ársreikningi flokksins, sem var skilað til Ríkisendurskoðunar í gær. Þess ber að geta að ofangreindar tölur eru samkvæmt óyfirfarinni útgáfu reikningsins. Hún hefur til að mynda ekki verið undirrituð af þáverandi framkvæmdastjóra, Andra Óttarssyni.

Hin mikla aukning eigna virðist að hluta liggja í fasteignum, því þær voru metnar á 548 milljónir 2008, meðan allir fastafjármunir 2007 námu 410 milljónum.

Heildarframlög til flokksins nema rúmum 253 milljónum 2008, en voru 317,4 milljónir árið 2007.

Framlög ríkis og sveitarfélaga nema tæpum 64 prósentum af heildarframlögum 2008.

Rekstrargjöld fóru úr 351,5 milljónum 2007 og í 205 milljónir 2008.

Reksturinn fór úr 37 milljóna tapi 2007 og í 62,5 milljóna hagnað 2008.

Árið 2008 studdu 39 fyrirtæki flokkinn og kemst listinn fyrir á rúmlega hálfu A4 blaði. Árið 2007 var listinn, með ögn stærra letri, tæpar sjö blaðsíður.

Þess skal getið að árið 2007 var kosningaár og því líklegt að flokkurinn hafi sóst frekar eftir styrkjum en árið eftir, eins skýrir það væntanlega meiri eyðslu það árið. Hvorki náðist í Jónmund Guðmarsson, framkvæmdastjóra flokksins, né Andra Óttarsson í gær. Bjarni Benediktsson formaður svaraði heldur ekki skilaboðum.

klemens@frettabladid.is






Tengdar fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 40 milljónir í styrki

Fyrirtæki og einstaklingar styrktu Sjálfstæðisflokkinn um 40 milljónir árið 2008. Flokkurinn hefur birt á heimasíðu sinni samantekinn ársreikningur sinn og aðildarfélaga.Aðrir flokkar hafa birt sína ársreikninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×