Tíska og hönnun

Gyðja hannar fyrir Hagkaup

Ný lína Sigrúnar kemur í verslun Hagkaupa í mars á næsta ári.
Ný lína Sigrúnar kemur í verslun Hagkaupa í mars á næsta ári.

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collection, vinnur nú að hönnun nýrrar fylgihlutalínu undir nýju nafni, sérstaklega fyrir Hagkaup. Stefnt er að því að línan komi í verslanir Hagkaupa í mars 2011 og verði til sölu í takmarkaðan tíma og upplagi. Hún mun samanstanda af skóm, töskum og beltum.

Í nýju línunni verður notast við leðurlíki og því miðað við annan markhóp en Gyðja Collection, sem eingöngu er gerð úr hágæðaefnum. Hún verður með klassískara útliti en Gyðja, þótt handbragð Sigrúnar Lilju muni glögglega sjást. "Við stefnum að sjálfsögðu að því að gæðin verði góð, og ég mun leggja mikið upp úr því að sniðin séu þægileg og hallinn réttur fyrir fætur," segir Sigrún Lilja, hæstánægð með samstarfið.

Með samstarfinu við Hagkaup fetar Sigrún Lilja í fótspor þekktra erlendra hönnuða, en til að mynda hefur verslunarkeðjan Target fengið Jean Paul Gaultier til að hanna línur fyrir verslunarkeðjuna undir sínu nafni, innblásnar af hátísku en á góðum kjörum. - hhs


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.