Fótbolti

Barca þarf að selja Zlatan ef það vill fá Fabregas

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ef Barcelona ætlar sér að fá Cesc Fabregas til félagsins þá verður félagið líklega að selja Zlatan Ibrahimovic til þess að fjármagna kaupin. Félagið er sagt vera tilbúið að selja Zlatan.

Það eru mikil fjárhagsvandræði hjá Börsungum eins og áður hefur verið greint frá.

Börsungar þurfa því að vera skynsamari í leikmannamálum sínum en oft áður.

Góður peningur ætti að fást fyrir Zlatan og veitir ekki af því Arsenal hefur engan áhuga á að missa Fabregas og hefur sett himinháan verðmiða á fyrirliðanna sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×