Fótbolti

Guti farinn til Tyrklands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Spænski miðjumaðurinn hjá Real Madrid, Guti, er genginn í raðir tyrkneska félagsins Besiktas að því er kemur fram í tyrkneskum fjölmiðlum í dag.

Þar er Guti sagður hafa skrifað undir tveggja ára samning. Hann mun fara til Tyrklands á næstu dögum þar sem hann verður kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins.

Þjálfari félagsins er Bernd Schuster sem hefur þjálfað Guti hjá Real. Hann þekkir því vel hvað Guti stendur fyrir.

Guti spilaði 387 leiki fyrir Real Madrid og skoraði í þeim leikjum 46 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×