Fótbolti

Baggio: Inter rétta liðið til að stöðva Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Roberto Baggio fylgist með tískusýningu í Mílanó.
Roberto Baggio fylgist með tískusýningu í Mílanó.

Roberto Baggio viðurkennir að Inter eigi erfitt verkefni fyrir höndum gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Baggio er af mörgum talinn einn besti sóknarmaður allra tíma og lék m.a. með Inter á löngum og farsælum ferli.

,,Barcelona er meistari og hefur þrjú ár í röð komist í undanúrslitin í þessari keppni. Ef þú skoðar hvernig þeim hefur gengið í leikjum gegn Inter á þessu tímabili þá er ekki hægt að segja annað en að spænska liðið sé sigurstranglegra fyrir þessa rimmu," sagði Baggio.

,,Hvernig stöðvar þú þá? Þú kemur í veg fyrir að þeir komist inn á San Siro! Án alls djóks þá tel ég Inter vera rétta liðið til að stöðva Barcelona. Leikstíll Inter gæti verið sá rétti til að ná að skemma spilamennsku Börsunga."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×