Fótbolti

Aguero ætlar ekki að vera hjá Atletico að eilífu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Manchester United og Chelsea eru líklega enn frekar á tánum eftir að Argentínumaðurinn Sergio Aguero lýsti því yfir að hann ætli sér ekki að vera hjá Atletico Madrid að eilífu.

Telja sumir að hann sé þegar farinn að undirbúa brottför sína frá félaginu næsta sumar.

United og Chelsea eru á meðal þeirra liða sem hafa lengi haft mikinn áhuga á leikmanninum og var jafnvel búist við þvi að hann færi frá Madrid í janúar. Ekkert varð síðan af því.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×