Fótbolti

Ef fólki mislíkar leikstíllinn getur það slökkt á sjónvarpinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, er orðinn afar pirraður á athugasemdum þess eðlis að liðið spili ekki fallegan fótbolta.

„Madrid spilar ekki lélegan fótbolta. Ég er mjög sáttur við þann bolta sem við spilum. Ef einhverjum mislíkar leikstíll okkar getur sá hinn sami bara slökkt á sjónvarpinu," sagði Ramos pirraður en Andres Iniesta, leikmaður Barcelona, hefur meðal annars gagnrýnt leikstíl liðsins.

„Þetta er lið sem hugsar um að sigra og hefur gríðarlegan metnað. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut til svo við komumst í 98 stig. Eins og staðan er núna er það ósanngjarnt gagnvart bæði okkur og Barcelona að vinna ekki titilinn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×